Hvernig á velja mynd á boðskortið

Þegar kemur að velja mynd á boðskortið þarf að huga að nokkrum hlutum.

Best er að velja sér mynd sem er í góðum gæðum, þ.s. myndir sem koma beint úr myndavélum eða símamyndavélum eru oftast það sem best er að vinna með.

Ef þú ert með mynd og prufar að zoom á hana og hún verður kornótt mjög fljótt þá er það mynd sem kemur mjög illa út úr prentun.

Svo er spurning hvort þú vilt hafa myndina í lit, svarthvíta eða brúntónaða.

Þessa mynd valdi ég að hafa í kortinu mínu og er 1,52MB að stærð og kemur þá fallega út eftir prentun.

Þessa mynd valdi ég að hafa í kortinu mínu og er 1,52MB að stærð og kemur þá fallega út eftir prentun.

 

Hér er hægt að sjá 2 týpur af sama kortinu.

Laser prentun á mattan 300gr pappír  –  prentun á ljósmyndapappír2

Símar og skjáir blekkja augað svoldið því þú nærð aldrei sama tær leika eftir prentun

Ef valið er laser prentun á mattan 300 gr pappír þá verður alltaf smá grófleiki yfir henni  þar sem þú nærð aldrei sama eiginleiki eins og prentun á ljósmyndapappír.

Ljósmyndapappír er  hannaður fyrir ljósmyndir svo að hann kemur alltaf fallegur út.

Ef myndinn er gróf eða úr fókust þá sést það mjög vel eftir prentun.

Ef nota á gamla mynd og það þarf að skanna hana er best að skanna hana í bestu  mögulegu upplausn sem völ er á, eða að fara á prentstofu og láta fagaðla sjá um verkið.

Mæli með www.pixlar.is fyrir skönnun á myndum.

beggahuna01_logo