Goggur
Price range: 9,900kr. through 39,900kr.
Goggur er skemmtilegt og persónulegt borðskraut sem fær gesti til að spjalla og taka þátt.
Hann er sérhannaður eftir þínum óskum og hægt er að samræma útlitið við boðskort eða annað prent. Þú velur texta, liti og innihald – fullkomið fyrir brúðkaup, fermingar og afmæli. Afhentur flatur og auðveldur í samsetningu.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Goggur
(hver man ekki eftir honum?)
Goggur er skemmtilegt og fallegt borðskraut sem fær gesti til að brosa, spjalla og taka þátt. Hægt er að fá hann í sama útliti og boðskortin þín, þannig að allt haldist í einum stíl.
Persónuleg hönnun & stíll viðskiptavinar
Þú sendir inn texta og hugmyndir – við útfærum hönnunina fyrir þig. Hönnunin er unnin með hliðsjón af stíl viðskiptavinarins, tilefni og heildaryfirbragði, án þess að velja þurfi fullbúið útlit sjálf/ur.
-
Skrifaðu texta og hugmyndir í kassann „Skrifaðu þinn texta hér“
eða -
Sendu upplýsingar í tölvupósti á bhhonnun@bhhonnun.is
-
Hentar fyrir brúðkaup, fermingar, afmæli og aðrar veislur
Athugið: Hönnun er útfærð af BH Hönnun í samræmi við óskir og stíl viðskiptavinar.
Skemmtun fyrir gestina
Þú getur fyllt gogginn með efni sem endurspeglar ykkur:
-
8 spurningar og 8 svör
eða -
16 skemmtilegar staðreyndir
Til dæmis um:
-
brúðhjónin
-
fermingarbarnið
-
afmælisbarnið
-
fjölskylduna eða veisluna
Í miðjunni er einnig pláss fyrir aukaupplýsingar, t.d.:
-
stuttan matseðil
-
þakkarorð
-
ljósmynd eða skilaboð til gestanna
Efni & frágangur
-
Prentað á 120 gr pappír
-
Prentun unnin af Pixlar.is á hágæða glossy pappír
-
Goggurinn er afhentur flatur og þarf að brjóta saman
Athugið
Þessi vara er sérhönnuð.
Sendingarvalmöguleikar taka ekki gildi fyrr en hönnun og prentun eru fullkláruð.
Hafðu samband
Ef þú hefur áhuga eða vilt ráðgjöf um útlit og stíl, hafðu samband og við finnum lausn saman.
Frekari upplýsingar
| Magn | 10stk m/ hönnun&prentun, 20stk m/ hönnun&prentun, 30stk m/ hönnun&prentun, 40stk m/ hönnun&prentun, 50stk m/ hönnun&prentun, 100stk m/ hönnun&prentun |
|---|














